Opinberar stofnanir og einkaaðilar
Hægt er að fylgjast með þróun eGos verkefnisins og fá jafnóðum fréttir af því sem gerist í verkefninu. Gefið er út fréttabréf reglulega og því eru tengd ýmis gagnleg skjöl (t.d. "Ethical guidelines for e-guidance delivery and usage" sem Raimo Vuorinen, Institute for Educational Research, University of Jyväskylä, og James P. Sampson, Jr., Institute for Educational Research, University of Jyväskylä skrifuðu).
Búist er við margvíslegum niðurstöðum úr verkefninu. Sú mikilvægasta verður án efa að tengd verður saman hefðbundin ráðgjöf og fjarráðgjöf þannig að þjóna megi hópum sem hingað til hafa orðið útundan af ýmsum ástæðum. Markmið verkefnisins eru að bjóða upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf í hæsta gæðaflokki þannig að hver og einn geti fengið þá ráðgjöf sem honum hentar hverju sinni. Stefnt er að því að bjóða upp á ráðgjöf fyrir fólk sem vill flytja milli landa. Vonast er til að ráðgjöf með aðstoð nettækni dragi úr kostnaði og einfaldi ferli hennar, bæði til lengri og skemmri tíma. Ráðgjafarnir sem taka þátt í verkefninu verða sérstaklega þjálfaðir og eins verða notendur þess þjálfaðir eftir þörfum til þess að nota það. Meðan á verkefnistímanum stendur verður búnaður þess prófaður og, reynist hann vel, verður hann settur á markað að því loknu. Með verkefninu verður reynt að beina sjónum opinberra aðila að auknum möguleikum fyrir tölvu- og upplýsingatækni í náms- og starfsráðgjöf . Einnig er vonast til þess að náms- og starfsráðgjafar sjái aukna möguleika í notkun tölvu- og upplýsingatækni í starfi sínu.
Með eGos kerfinu er unnt að ná til fólks sem annars er erfitt að hafa samband við. Þegar til lengri tíma er litið dregur svona þjónusta úr opinberum kostnaði og verður um leið til þess að fleiri geta fundið sína leið í námi eða starfi.
eGOS þjónustan verður boðin í samspili við hefðbundna náms- og starfsráðgjöf. Þeir sem ekki vilja nota netið af einhverjum ástæðum geta beðið um ráðgjöf augliti til auglitis. Því er ekki hætta á að neinum finnist þjónustuan hafa minnkað, þvert á móti, boðið verður upp á meiri og betri þjónustu.

